Frá Þýskalandi til Ítalíu

Gravedona – Lecco 65k

Posted in Uncategorized by hjolaferd on maí 23, 2009

Jæja, gærdagurinn var slakur hjá okkur. Við skruppum á veitingastað í Gravedona við vatnið og fengum okkur kalt rauðvín og vitello tonnato. Hvílík snilld sem þessi réttur er, kálfakjöt baðað í túnfisksósu og kapers – verð nú samt að segja að Tino gerir besta VT í heimi! Anyway, við hjóluðum í rólegheitum eftir vatninu niður að Menaggio og fengum okkur hádegismat þar, ravioli með bacon og gorgonzola.. Mmm.. Tókum svo ferjuna yfir til Bellagio sem er lítill bær á tanga í miðju vatninu, ótrúlega fallegt þarna. Fengum okkur ís og hjóluðum aðeins um bæinn. Tókum svo ferjuna til Varenna og tókum sprettinn niður til Lecco. Vorum komnir þangað að verða sex en áttum í erfiðleikum með að finna gistingu. Eftir hótelrúntinn mikla fundum við loks hótel, Moderno – reyndar ekkert moderno við það – en gott að vera komnir með gistingu. Röltum okkur svo út í supermarkaðinn og fengum okkur Mozzarella di Buffala, hráskinku og mortadella í forrétt áður en við fórum á veitingastað hérna niðri á torginu og fengum okkur aftur VT og kalt rauðvín. Tókum svo pöbbaröltið og fengum okkur spritza…

Savognin – Gravedona Myndir

Posted in Uncategorized by hjolaferd on maí 23, 2009

Tagged with: , , ,

Spritz!!!

Posted in Uncategorized by hjolaferd on maí 22, 2009

Spritz!!!

Savognin – Gravedona (Como) 115k

Posted in Uncategorized by hjolaferd on maí 21, 2009

Vöknuðum í morgun eftir gott, afslappað kvöld, fengum góðar pizzur, vino rosso og klikkuðum út með grappa, heitu súkkulaði og Stroh – þarna hittust Ítalía og Sviss í góðum drykkjum. Hámuðum í okkur morgunmatinn og rukum svo af stað í hálfskýjuðu veðri og nokkrum metrum í mótvind. Verkefni dagsins var að komast yfir Julienpass og svo í gistingu – vorum að gæla við að fara til Chiavenna. Savognin er í rúmlega 1200m hæð og við vissum að hæsti punktur væri í 2284m og 30k fjarlægð en höfðum ekki hugmynd um hversu erfitt þetta yrði. Tókum 50m hækkun í einu og kom í ljós að það var eiginlega of lítið svo við spiluðum þetta svona eftir lærunum, stoppuðum þegar við þurftum osfrv. Við fórum í gegnum Tinizong, Rona, Mulegns, Marmorera og Bivio sem er í 1769m hæð – allt æðislegir bæir! Við Marmorera var orðið nokkuð kalt og vindurinn sagði líka til sín svo við vippuðum okkur í kuldagallann. Frá Bivio voru svo 5k í Julien og 500m upp. Á leiðinni hittum við svo Svissara frá Bern sem hafði lagt af stað frá hinum hræðilega leiðinlega bæ Tiefencastel í morgun. Hann var mjög hress og við skiptumst á að taka framúr honum og hann okkur á leiðinni að Julienpass. Í dag er frídagur hér eins og heima og sennilega þessvegna var svona mikil umferð mótorhjóla um skarðið og ég held ég hafi talið um 674 sem fóru framhjá okkur, gætu verið plús eða mínus 10 :) Síðustu kílómetrana var vegurinn mjög brattur og ekkert nema zikkzakk þangað til við komum upp á efsta punkt, Julienpass í 2284m hæð kl. 13.30. Við vorum raunar sammála um það að hingað til hafi ferðin verið nokkuð erfið en ekki eins erfið og við héldum fyrirfram. Það má segja að við höfum étið hæðarmetra í morgunmat. En nú lá leiðin niðurávið. Við renndum okkur niður hlykkjóttan veginn til Silvaplana sem er í 1850m hæð og fengum okkur aðeins í gogginn. 40k komnir í hús í dag og klukkan bara rétt rúmlega hádegi. Hjóluðum meðfram svakalega flottum vötnum þarna uppi sem eru umlukin fjöllum á alla kanta og komum loks að Malojapass sem er í 1815m hæð. Hrykalega flottur vegur þar niður, örugglega 30-40 hlykkir að Casaccia í 1458m hæð. Tókum svo bæina einn í einu, nánast án þess að hjóla einn snúning, Vicosoprano (1067), Stampa, Bondo (821) og loks Chiavenna í 325m hæð og 85k fjarlægð frá Savognin. Klukkan var rúmlega fimm og við ákváðum að fara að Como vatni fyrst við vorum komnir svona langt svo við hjóluðum eftir Chiavenna dalnum til Novate og Campo og svo norðvestanmegin við vatnið til Gravedona þar sem við fundum huggulegt fjölskylduhótel með bílskúr fyrir hjólin. Í dag erum við semsagt búnir að hjóla úr 1200m hæð frá sjávarmáli upp í 2284m og rúlla okkur svo niður í 206m í Gravedona og taka 115k. Við bara hættum varla að hjóla nema vera búnir með amk 100k. Hugsa nú að það breytist á morgun. Svo fengum við okkur pizzu, vitello tonnato og kalt rauðvín á litlum veitingastað sem fólkið á hótelinu mælti með og tókum svo rómantíska göngu meðfram Como með ís :)

Vaduz – Savognin 90k

Posted in Uncategorized by hjolaferd on maí 20, 2009

Alright, dagurinn búinn að vera að mestu massagóður. Fórum frá Vaduz um kl 10.30 – sem er met btw – og hjóluðum til Chur sem var um 35k leið. Á leiðinni komum við aftur til Sviss og hjóluðum framhjá herstöð þar sem mikið var um skotæfingar sem bergmáluðu flott í fjöllunum. Svo komum við til Chur sem er flottur bær í miðjum Ölpunum einhvernvegin, fjöllin umlykja hann á alla kanta. Við vorum þar kl 13 og fengum okkur orkumiklar Alpamakkarónur í hádegismat. Í Chur keyptum við okkur líka gott kort sem ætti að duga okkur til Garda og svo keypti undirritaður sér Svisshjólastuttermabol – það er ómögulegt að vera alltaf í síðerma í þessari sól! Í hjólabúðinni kom að máli við okkur gamall maður sem hét Otto og fór að spyrja okkur hvað við værum að gera, hvaðan við værum og svona. Við sögðum honum allt af létta og þá spurði hann um hvernig hagkerfið væri heima – greinilega með allt á hreinu. Hann hafði svo miklar áhyggjur af okkur að vera að fara yfir Julienpass að hann gaf okkur sætabrauð og derhúfu útaf sólinni. Svo fylgdi hann okkur áleiðis til Reichenau, þangað sem við ætluðum næst. Við þökkuðum Otto kærlega fyrir hjálpina, tókum nokkrar myndir og héldum áfram. Á leiðinni til Reichenau villtumst við samt eitthvað og lentum á 8k malarvegi uppí hlíð og þurftum að sjanghæja hjólunum yfir tvær girðingar áður en við komumst aftur á rétta leið. Þá vorum við komnir til Bonaduz, framhjá Reichenau. Við vorum aðeins eftirá svo við héldum áfram til Thusis, sem er í 720m hæð. Vorum þar um sexleitið og stoppuðum í Aldi og fengum okkur þurrkuð epli, rúsínur og hnetur. Héldum svo eftir dölunum áfram til Tiefencastel, í 850m hæð, en þegar þangað var komið, við búnir að hjóla 80k yfir daginn og hækka um 900 metra samtals þótti okkur það svo hræðilega leiðinlegur bær að við ákváðum að sofa frekar í Savognin sem var í 10k fjarlægð og 1210m hæð. Og viti menn, það var rétt hjá okkur, Savognin var miklu skemmtilegri. Hittum pensioneraðan hollending sem fór að spjalla, fengum okkur fína pizzu og héldum svo á herbergið til að klára dagsverkin – þvo af okkur fötin! Á morgun stefnum við svo á að fara yfir Julierpass sem er í rúmlega 2200m hæð og ca 35k fjarlægð og þá eru svona 40-50k eftir til Chiavenna.

Tagged with: ,

Konstaz – Vaduz 110k

Posted in Uncategorized by hjolaferd on maí 19, 2009

Ætluðum aldeilis að taka daginn snemma og vöknuðum kl. 8 í morgun og fórum í morgunmat. En einhvernvegin tekur þetta allt lengri tíma en maður ætlar og við vorum ekki byrjaðir að hjóla fyrr en rétt að verða 11. Þá voru einhverjir leiðinda smellir í hjólunum sem við létum skoða og í ljós kom að það þurfti að herða fótstigin betur. Drifum okkur svo af stað suðaustur eftir Bodensee. Krossuðum yfir til Sviss í Kreuzlingen og stppuðum í síðbúinn hádegismat í Romanshorn eftir ca 30k. Fórum svo þaðan áfram eftir Bodensee og í gegnum Rorschach. Við vorum á svo góðu rönni þegar þarna var komið að við rétt náðum að fá okkur íspinna í Sviss áður en við duttum yfir til Austurríkis og til Feldkirch. Þar settumst við svo niður eftir 85k og klukkan orðin 18 og fengum okkur pizzu og hvítvínsglas. Drifum okkur svo af stað til Vaduz sem er í Lichtenstein, sem er þá fjórða landið sem við heimsækjum í dag. Fundum ágætis gasthaus fyrir nóttina og stefnum enn og aftur á að fara snemma af stað. Morgundagurinn gæti orðið áhugaverður, 36k til Chur með einhverri hækkun og svo ca annað eins til Tiefencastel með hæsta punkt í ca 800m. Lichtenstein er mjög huggulegt og sveitó og eitt hafa þeir gert skynsamlega – eru ekki með sjálfstæðan gjaldmiðil heldur svissneska franka! :)

Offenburg – Freiburg – ???? 115k

Posted in Uncategorized by hjolaferd on maí 18, 2009

Við erum loksins komnir inn á hótel eftir mjög langan dag. Byrjuðum í Offenburg um kl. 11 og héldum í áttina að Rín. Svo komum við að einhverri á, sem var bara nokkuð stór, amk á íslenskan mælikvarða, sem við héldum að væri Rín. En oh boy, we were wrong :) Rín er heví stór! Við hjóluðum meðfram henni í ca 10k en beygðum svo í suðaustur í átt að Freiburg. Þangað vorum við komnir um kl 17.30 og 90k og duttum beint inn á Burger King – tveir double cheeseburgers! Það var ákveðið að halda áfram í áttina að Konstanz þó klukkan væri orðin margt og vinna okkur aðeins í haginn. Ákváðum að fara í bæ sem heitir Titisee og áttu að vera 37k. En nei, nei, við áttum ekki séns, komumst aðeins 25k eftir að hafa klifrað 700-800m og stoppuðum á gistihúsi í 1036m hæð kl 21.30. Reyndar mjög huggulegt og konan kom með í gogginn fyrir okkur þegar við vorum búnir að koma okkur fyrir. Svo tókum við til við að þvo – ég tók fötin í gegn en Tommi hjólin. Stefnum svo á að halda áfram til Konstanz og Bodensee í dag, mælirinn segir 120k, við skulum sjá hvað við komumst langt

??? – Konstanz 130k

Posted in Uncategorized by hjolaferd on maí 18, 2009

Loksins komnir upp á hótel eftir langan en frekar léttan dag. Hófum daginn á staðgóðum morgunverði í Svartaskógi hjá ljúfu konunni með tóma gistiheimilið. Greinilegt að túristatímabilið er ekki enn hafið á svona fjallahótelum. Héldum svo í skítakulda til Donaueschingen í uþb 40k og duttum í fínan austurlenskan hádegismat þar. Á resturantinum (meira svona eins og Thai Style á Smiðjuveginum) hittum við svo mann sem við spurðum hvort að gæti sagt okkur svona bestu leiðina til Konstanz. Það var alveg sjálfsagt og hann bað okkur bara, þegar við værum búnir með matinn, að kíkja á sig í næsta hús þar sem hann vann því við værum ekki með nógu gott kort! Svo kíktum við á karlinn og þá var hann búinn að ljósrita fyrir okkur kort og merkja nákvæma hjólaleið inn á. Svo kemur í ljós að maðurinn er skipulagsstjóri Donaueschingen – talandi um að þekkja rétta fólkið! :) Eftir þetta fórum við samviskusamlega eftir kortinu til Geisingen – rúmlega 22k, svo Engen – ca 20k og Singen – 20k. Vorum í Singen um kl 17.30 og ákváðum að skella okkur til Radolfzell am Boden og fá okkur kvöldmat. Þar fengum við þennan dýrindis kvöldmat (reyndar hefði sennilega allt bragðast vel á þessum tímapunkti, svo svangir vorum við) kjúklingabringa í sveppasósu, heimagerðar nudeln og salat. Eftir matinn vorum við svo orkumiklir og motiveraðir að við ákváðum að taka létt síðustu 20k til Konstanz og eins og færslan byrjar, duttum inn á ágætis gistingu með morgunmat.

Tagged with:

Þýska sveitasælan og Rín

Posted in Uncategorized by hjolaferd on maí 17, 2009

Fórum af stað frá Offenburg rétt fyrir hádegi og hjóluðum áleiðis til Freiburg og sitjum nú í sveitinni og drekkum vatn og djús. Tómas er kominn í KR hlýrann en undirritaður er greinilega ekki eins útverminn og er í tveimur síðerma og síðum buxum. Yndislegt að chilla í þýsku sveitasælunni.

Tagged with:

Baden Baden – Offenburg 70k

Posted in Uncategorized by hjolaferd on maí 16, 2009

Tókum af stað kl. 16 eftir að hafa bragðað besta aspas hérnamegin við Rín. Leiðin lá til Reinau sem er mjög þekktur staður. Þaðan fórum við til Offenburg og borðuðum aftur aspas með Alla, pabba Tomma – algjört æði. Svo er það Eurovision – áfram Þýskaland!!! – og öllari… Stefnum á hádegismat í Freiburg á morgun og svo eitthvað áleiðis að Bodensee.

Tagged with: ,