Vaduz – Savognin 90k
Alright, dagurinn búinn að vera að mestu massagóður. Fórum frá Vaduz um kl 10.30 – sem er met btw – og hjóluðum til Chur sem var um 35k leið. Á leiðinni komum við aftur til Sviss og hjóluðum framhjá herstöð þar sem mikið var um skotæfingar sem bergmáluðu flott í fjöllunum. Svo komum við til Chur sem er flottur bær í miðjum Ölpunum einhvernvegin, fjöllin umlykja hann á alla kanta. Við vorum þar kl 13 og fengum okkur orkumiklar Alpamakkarónur í hádegismat. Í Chur keyptum við okkur líka gott kort sem ætti að duga okkur til Garda og svo keypti undirritaður sér Svisshjólastuttermabol – það er ómögulegt að vera alltaf í síðerma í þessari sól! Í hjólabúðinni kom að máli við okkur gamall maður sem hét Otto og fór að spyrja okkur hvað við værum að gera, hvaðan við værum og svona. Við sögðum honum allt af létta og þá spurði hann um hvernig hagkerfið væri heima – greinilega með allt á hreinu. Hann hafði svo miklar áhyggjur af okkur að vera að fara yfir Julienpass að hann gaf okkur sætabrauð og derhúfu útaf sólinni. Svo fylgdi hann okkur áleiðis til Reichenau, þangað sem við ætluðum næst. Við þökkuðum Otto kærlega fyrir hjálpina, tókum nokkrar myndir og héldum áfram. Á leiðinni til Reichenau villtumst við samt eitthvað og lentum á 8k malarvegi uppí hlíð og þurftum að sjanghæja hjólunum yfir tvær girðingar áður en við komumst aftur á rétta leið. Þá vorum við komnir til Bonaduz, framhjá Reichenau. Við vorum aðeins eftirá svo við héldum áfram til Thusis, sem er í 720m hæð. Vorum þar um sexleitið og stoppuðum í Aldi og fengum okkur þurrkuð epli, rúsínur og hnetur. Héldum svo eftir dölunum áfram til Tiefencastel, í 850m hæð, en þegar þangað var komið, við búnir að hjóla 80k yfir daginn og hækka um 900 metra samtals þótti okkur það svo hræðilega leiðinlegur bær að við ákváðum að sofa frekar í Savognin sem var í 10k fjarlægð og 1210m hæð. Og viti menn, það var rétt hjá okkur, Savognin var miklu skemmtilegri. Hittum pensioneraðan hollending sem fór að spjalla, fengum okkur fína pizzu og héldum svo á herbergið til að klára dagsverkin – þvo af okkur fötin! Á morgun stefnum við svo á að fara yfir Julierpass sem er í rúmlega 2200m hæð og ca 35k fjarlægð og þá eru svona 40-50k eftir til Chiavenna.






leave a comment