Frá Þýskalandi til Ítalíu

Savognin – Gravedona (Como) 115k

Posted in Uncategorized by hjolaferd on maí 21, 2009

Vöknuðum í morgun eftir gott, afslappað kvöld, fengum góðar pizzur, vino rosso og klikkuðum út með grappa, heitu súkkulaði og Stroh – þarna hittust Ítalía og Sviss í góðum drykkjum. Hámuðum í okkur morgunmatinn og rukum svo af stað í hálfskýjuðu veðri og nokkrum metrum í mótvind. Verkefni dagsins var að komast yfir Julienpass og svo í gistingu – vorum að gæla við að fara til Chiavenna. Savognin er í rúmlega 1200m hæð og við vissum að hæsti punktur væri í 2284m og 30k fjarlægð en höfðum ekki hugmynd um hversu erfitt þetta yrði. Tókum 50m hækkun í einu og kom í ljós að það var eiginlega of lítið svo við spiluðum þetta svona eftir lærunum, stoppuðum þegar við þurftum osfrv. Við fórum í gegnum Tinizong, Rona, Mulegns, Marmorera og Bivio sem er í 1769m hæð – allt æðislegir bæir! Við Marmorera var orðið nokkuð kalt og vindurinn sagði líka til sín svo við vippuðum okkur í kuldagallann. Frá Bivio voru svo 5k í Julien og 500m upp. Á leiðinni hittum við svo Svissara frá Bern sem hafði lagt af stað frá hinum hræðilega leiðinlega bæ Tiefencastel í morgun. Hann var mjög hress og við skiptumst á að taka framúr honum og hann okkur á leiðinni að Julienpass. Í dag er frídagur hér eins og heima og sennilega þessvegna var svona mikil umferð mótorhjóla um skarðið og ég held ég hafi talið um 674 sem fóru framhjá okkur, gætu verið plús eða mínus 10 :) Síðustu kílómetrana var vegurinn mjög brattur og ekkert nema zikkzakk þangað til við komum upp á efsta punkt, Julienpass í 2284m hæð kl. 13.30. Við vorum raunar sammála um það að hingað til hafi ferðin verið nokkuð erfið en ekki eins erfið og við héldum fyrirfram. Það má segja að við höfum étið hæðarmetra í morgunmat. En nú lá leiðin niðurávið. Við renndum okkur niður hlykkjóttan veginn til Silvaplana sem er í 1850m hæð og fengum okkur aðeins í gogginn. 40k komnir í hús í dag og klukkan bara rétt rúmlega hádegi. Hjóluðum meðfram svakalega flottum vötnum þarna uppi sem eru umlukin fjöllum á alla kanta og komum loks að Malojapass sem er í 1815m hæð. Hrykalega flottur vegur þar niður, örugglega 30-40 hlykkir að Casaccia í 1458m hæð. Tókum svo bæina einn í einu, nánast án þess að hjóla einn snúning, Vicosoprano (1067), Stampa, Bondo (821) og loks Chiavenna í 325m hæð og 85k fjarlægð frá Savognin. Klukkan var rúmlega fimm og við ákváðum að fara að Como vatni fyrst við vorum komnir svona langt svo við hjóluðum eftir Chiavenna dalnum til Novate og Campo og svo norðvestanmegin við vatnið til Gravedona þar sem við fundum huggulegt fjölskylduhótel með bílskúr fyrir hjólin. Í dag erum við semsagt búnir að hjóla úr 1200m hæð frá sjávarmáli upp í 2284m og rúlla okkur svo niður í 206m í Gravedona og taka 115k. Við bara hættum varla að hjóla nema vera búnir með amk 100k. Hugsa nú að það breytist á morgun. Svo fengum við okkur pizzu, vitello tonnato og kalt rauðvín á litlum veitingastað sem fólkið á hótelinu mælti með og tókum svo rómantíska göngu meðfram Como með ís :)

2 svör

Subscribe to comments with RSS.

  1. Hildur Sesselja said, on maí 23, 2009 at 00:22

    úff hvað er gaman hjá ykkur!!! jesus minn hvað þið eruð duglegir!! gaman að geta fylgst með ykkur :)
    kveðja
    HILDUR

  2. Martina said, on maí 23, 2009 at 09:52

    þið eruð svoddan krútt þarna saman.. ;) vona bara að þið látið ekki gefa ykkur saman!


Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.